Skip to content

Erborian | Yuza Vitamin Mask 60 ml

frá -
5.590 kr - 5.590 kr
5.590 kr
5.590 kr - 5.590 kr
5.590 kr
Litur: Default Title


Vörulýsing

YUZA VITAMIN-MASK gefur húðinni orkuskot sem endurnærir sýnilega þreytta húð (líflaust litarhaft og þyrsta húð) og gefur henni meiri útgeislun. Formúlan inniheldur e-vítamín, yuzu ávaxtaseyði og yuzu olíu, sem er þekkt fyrir hátt innihald af hollum fitusýrum. Saman næra þau húðina og draga greinilega úr þreytuummerkjum.

Nærandi andlitsmaskinn aðlagar sig að þörfum húðarinnar:
1. þegar þú notar hann sem snöggan 10 mínútna maska: húðin fyllist af raka og verður samstundis líflegri í útliti.
2. sem næturmaska: þökk sé silkimjúkri og umvefjandi áferðinni verður húðin nærð og úthvíld morguninn eftir.

Prófað undir eftirliti húðlækna.

Virk innihaldsefni:

· Yuzu ávaxtaseyði (e. Yuzu fruit extract): Rakagefandi og ríkt af andoxunarefnum. Inniheldur ceramid C24 sem er þekkt fyrir að styrkja varnir húðarinnar.

· Yuzu fræjaolía (e. Yuzu seed oil): Nærandi eiginleikar. Styrkir varnir húðarinnar og viðheldur raka í húðinni.

· Shea smjör : Mýkjandi og nærandi eiginleikar.

· Lakkrísrótarseyði (e. Licorice root extract): Ríkt af andoxunarefnum og gefur húðinni bjart útlit.

Hverjum hentar varan?

Hentar öllum húðtegundum. Þurr húð. Rakaþurr húð. Öldrunarummerki.

Notkunarleiðbeiningar

Berðu þykkt lag á þurra og hreina húð og láttu liggja á í 10 mínútur. Fjarlægja má afgangsvöru af húðinni með bómullarskífu. Til að nota sem næturmaska er þykkt lag borið á húðina og látið liggja á húðinni yfir nótt. Þarf ekki að þrífa af. Notaðu tvisvar í viku.

Afgreiðslutími

Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun.

Skilmálar

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Heimadecor ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Heimadecor til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Verð á vöru og sendingakostnaður


Öll verð í vefverslun eru með inniföldum vsk, 11% eða 24% eftir því sem við á. Öll verð eru birt með fyrirvara um myndbrengl eða prentvillur og áskilur Heimadecor sér rétt til að hætta við viðskipti hafi rangt verð verið gefið upp. Ef varan en ekki til á lager látum við þig vita og endurgreiðum hafi greiðsla farið fram. Sendingakostnaður bætist við vöru áður en greiðsla fer fram. Hægt er að velja sendingu á næsta pósthús á 995 kr. eða heimsending upp að dyrum á 1.695 kr. Sendingar kostnaður fellur niður ef verslað er fyrir 15.000 kr. eða meira.
*ATH. að þetta á ekki við um húsgögn eða tilboðsvörur.

Að skipta og skila vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Gölluð vara


Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

Heimadecor áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verð upplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Viðskiptaskilmálar