Gjafasett The smoothing trio
Enduruppgötvaðu húðina þína með þessum kóresku "beauty-favourites" í hentugum ferðastærðum - fullkomið sett fyrir ljómandi, hreina og silkimjúka húð.
Á morgnana færðu hinn eftirsótta „baby skin“ effekt með BB Creme, sem sameinar húðumhirðu og förðun til að jafna húðlitinn, hylja smávægilegar ójöfnur og gera húðina sýnilega mýkri. Á kvöldin tekur þú upp hina klassísku kóresku tvíhreinsun með Centella Cleansing Oil og Centella Cleansing Gel, sem fjarlægja farða, óhreinindi og umfram olíu á mildan en áhrifaríkan hátt.
Settið inniheldur:
BB Creme 15 ml
Gefur létta og uppbygjanlega þekju sem blandast náttúrulega við húðina án þess að verða klessuleg. Formúlan er auðguð með kóresku ginsengi sem hjálpar til við að slétta húðina dag frá degi.
Centella Cleansing Oil 30 ml
Létt og silkimjúk hreinsiolía sem leysir upp farða, umfram fitu og óhreinindi á meðan hún viðheldur raka húðarinnar.
Centella Cleansing Gel 30 ml
Milt en djúphreinsandi hreinsigel sem skilur húðina eftir hreina, ferska og róaða.
BB Crème: Berið á andlit og háls og dreifið vel úr kreminu með höndunum. Best er að vinna litinn út frá miðju andlitsins. BB kremið er hægt að nota eitt og sér eða á eftir öðru dagkremi.
Centella Cleansing Oil: Berðu beint á þurra húð og nuddaðu mjúklega yfir andlit og augnsvæði með hringlaga hreyfingum. Bættu við smá vatni til að fá aukna froðu og hreinsaðu svo vel af.
Centella Cleansing Gel: Berðu á raka húð og augnsvæði og nuddaðu mjúklega með hringlaga hreyfingum. Hreinsaðu svo vel af.
Best að nota eftir Centella Andlistolíunni til að djúphreinsa.
Skilmálar
Afhending vöru
Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Heimadecor ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Heimadecor til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Verð á vöru og sendingakostnaður
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum vsk, 11% eða 24% eftir því sem við á. Öll verð eru birt með fyrirvara um myndbrengl eða prentvillur og áskilur Heimadecor sér rétt til að hætta við viðskipti hafi rangt verð verið gefið upp. Ef varan en ekki til á lager látum við þig vita og endurgreiðum hafi greiðsla farið fram. Sendingakostnaður bætist við vöru áður en greiðsla fer fram. Hægt er að velja sendingu á næsta pósthús á 995 kr. eða heimsending upp að dyrum á 1.695 kr. Sendingar kostnaður fellur niður ef verslað er fyrir 15.000 kr. eða meira. *ATH. að þetta á ekki við um húsgögn eða tilboðsvörur.
Að skipta og skila vöru
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.
Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.
Heimadecor áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verð upplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.